Forsíða > Allar vörur > Húsgögn > Stólar > Bekkir & Kollar > Broste Fiber kollur

Broste Fiber kollur

Original price was: 22.990 kr..Current price is: 16.093 kr..

Kollur frá danska merkinu Broste. Kollurinn er úr trefjasteypu en trefjarnar gefa skemmtilega lifandi áferð sem vegur á móti hreinu línunum sem oft einkenna skandinavíska hönnun. Passar úti, inn eða hvar sem er. Fæst einnig hringlaga (og sem borð).

Ekki til á lager

Þessi vara er uppseld í augnablikinu. Skráðu þig á biðlista og þú færð tölvupóst þegar varan kemur á lager.

Vörulýsing

Trefjasteypa er frábært efni fyrir útihúsgögn þar sem blandan af trefjum og sementi gerir hana trausta og fallega eins og steinsteypu, en hún er létt og því auðvelt að færa húsgögnin til.  Hægt er að viðhalda húsgögnunum með því að nota Steinþéttiefni og Steinolíu sem bæði veitir vörn gegn óhreinindum og blettum og hrindir einnig vatni frá. Ef um minniháttar sprungur er að ræða er mælt með því að slípa létt og nota vax til viðgerðar. Það er náttúruleg vara sem kemur með litaafbrigðum sem veðrast með tímanum við mismunandi veðurskilyrði.

Mikilvægt er að hafa í huga að trefjasteypan er ekki frostþolin og því þarf að geyma húsgögnin inni yfir veturinn til þess að tryggja langan líftíma.

Nánari upplýsingar

Vörunúmer: 14469001
Ummál 37 × 37 × 40 cm
Litur

Brúnn

,

Grár

Tegund

Kollar

Vörulína

Vantar þig frekari upplýsingar? Ekki hika við að hafa samband við okkur í síma eða með tölvupósti!

Getum við aðstoðað?

Sendu okkur skilaboð og við svörum þér eins fljótt og auðið er.