Forsíða > Allar vörur > Húsgögn > Ljós > Borðlampar > Eva Solo lampi Sunlight 15cm

Eva Solo lampi Sunlight 15cm

12.990 kr.

Þessi einstaki, umhverfisvæni lampi gengur fyrir sólarorku en sólarrafhlaðan er falin inni í fallegri hönnun hans. Lampinn gefur frá sér þægilega og hlýja birtu og á honum eru engar snúrur. Eftir sólríkan dag lifir á lampanum í um 20 klukkustundir.

Ekki til á lager

Þessi vara er uppseld í augnablikinu. Skráðu þig á biðlista og þú færð tölvupóst þegar varan kemur á lager.

Vörulýsing

Lampinn hentar meðal annars í sólstofuna, á pallinn eða í garðinn, enda þolir hann létt frost. En íslensk veðrátta er óstöðug og ófyrirsjáanleg og ekki er hægt að ábyrgjast að vara þoli hvaða veður sem er. Við hvetjum því alltaf viðskiptavini okkar að hafa í huga að færa inn sumarvörurnar þegar við á, t.d. þegar spáir miklu frosti eða vindi.

Eftir heiðskýran dag lifir ljós á lampanum í um 20 klukkustundir en hægt er að slökkva og kveikja bæði sjálfvirkt (eftir birtustigi) og handvirkt.

Skermurinn er úr sandblásnu gleri og stendur hann á álfæti. Með lampanum fylgir LED pera sem endist í um 15.000 klukkustundir.

Smelltu hér til að opna pdf með ítarlegum upplýsingum um lampann. Opnast í nýjum glugga (á nokkrum tungumálum, m.a. ensku og dönsku).

Nánari upplýsingar

Vörunúmer: 571337
Ummál 15 cm
Litur

Silfraður

,

Glær

Tegund

Lampar

Vantar þig frekari upplýsingar? Ekki hika við að hafa samband við okkur í síma eða með tölvupósti!

Getum við aðstoðað?

Sendu okkur skilaboð og við svörum þér eins fljótt og auðið er.