Forsíða > Allar vörur > Smávörur > Borðhald > Leirtau > Diskar > Moomin diskur 19cm True to its origin

Moomin diskur 19cm True to its origin

4.790 kr.

Ekki til á lager

Þessi vara er uppseld í augnablikinu.
Skráðu þig á biðlista og þú færð tölvupóst þegar varan kemur á lager.

Vörulýsing

True to its origins byggir á sögunum Moominvalley in November og Moominpappa at Sea. Í sögunum flytur Múmínfjölskyldan í vita á lítilli eyju. Veðrið við vitann er óútreiknanlegt og fjölskyldumeðlimirnir upplifa nýja heimilið á mismunandi hátt. Múmínsnáðinn er mikið einn, Múmínmamma saknar Múmíndals og Múmínpabbi reynir að skilja og læra á umhverfi sitt. Mía litla er sú eina sem kippir sér ekkert upp við breyttar aðstæður. Á sama tíma eru aðrir íbúar í Múmíndal að leita að fjölskyldunni og sakna hennar mikið. Hemúlarnir, Snúður og fleiri flytja inn í hús Múmínfjölskyldunnar og reyna að lifa eins og fjölskyldan sem þau líta svo mikið upp til.

Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala.Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt!Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.

Nánari upplýsingar

Vörunúmer: 5111024601
Litur Grár
Tegund Diskar
Vörulína

Vantar þig frekari upplýsingar? Ekki hika við að hafa samband við okkur í síma eða með tölvupósti!

Getum við aðstoðað?

Sendu okkur skilaboð og við svörum þér eins fljótt og auðið er.