-20%
Ayu húðvörurnar eru byggðar á fornri indverskri heimspeki; Ayurveda, sem er heildræn nálgun við lífið og miðar að því að skapa hið fullkomna jafnvægi líkama, huga og anda. Það sem þú setur ofan í og á líkama þinn hefur áhrif á innri og ytri vellíðan og það sama gildir fyrir húðina þína.
Allar Ayu vörurnar eru framleiddar á Indlandi með náttúrulegum jurtum og olíum sem eru sérstaklega hannaðar til að endurheimta meðfætt jafnvægi húðarinnar. Ayu hjálpar þér að velja réttu umhirðuna til að koma jafnvægi á húðina og gefa þér sléttari, ferskari og heilbrigðari húð.
Kapha Línan hefur áhrif á uppbyggingu húðarinnar og ýtir undir Kollagen og rakaframleiðslu húðarinnar. Kapha einstaklingar eru oft með fremur ljósa en þykka húð sem á til að vera frekar olíukennd, en upp á sitt besta er hún guðdómlega ljómandi.
Einstaklingar þessir eru sérstaklega ljúfir, jarðtengdir og hafa miðlungs orku, en á sínum verstu dögum finna þeir fyrir sljóleika.